Tól

Leita
English Veftré

07.05.2011

Dýrðlegir desertar í glösum

Hjá Sælkeradreifingu fást himneskir eftirréttir frá snillingunum hjá Rolph & Rolph í Belgíu. Desertarnir koma frosnir í 66 ml glösum, 20 stk. saman, ýmist sömu tegundar eða fjórar tegundir í kassa. Ótrúlega fallegir á að sjá og smakkast unaðslega. Rolph og Rolph leggja mikinn metnað í framleiðsluna. Allt hráefni er fyrsta flokks og unnið er eftir ströngu gæðakerfi. Auk þess að vera flinkir í faginu eru desertmeistararnir líka miklir fagurkerar þannig að útkoman gleður bæði augað og bragðlaukana. Kíktu á úrvalið hjá okkur með því að slá inn í leitargluggann ROP- . Einnig bendum við á heimasíðu Rolph & Rolph www.rolph-rolph.com.

  rolph

Til baka